Fjártæknistefnumót við Íslandsbanka
Tue 10 Jan
|Gróska


Time & Location
10 Jan 2023, 15:00
Gróska, Bjargargata 1 102, 101 Reykjavík, Iceland
About the Event
Þriðjudaginn 10. janúar kl. 15 fer fram stefnumót Fjártækniklasans og Íslandsbanka í bíósal Grósku, Bjargargötu 1. Markmið stefnumótsins er að vekja athygli á gróskunni í fjártækni í dag, kynna nokkur af nýsköpunarfyrirtækjum Fjártækniklasans og kynnast stefnum og straumum í stafrænni bankastarfsemi.
Íslandsbanki mun kynna stefnu sína og verkefni og síðan munum við heyra „örkynningar“ frá fyrirtækjunum þar sem þau kynna það sem þau eru að gera. Eftir kynningar gefst tækifæri til spjalls.
Fram koma:
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka
Riaan Dreyer, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka
Tinna Björk Bryde, viðskiptaþróunarstjóri hjá Aurbjörgu